Bowennám
Hvað gerir bandvefslosun með Bowen-nálgun áhrifaríka?
Bandvefslosun með Bowen-nálgun er oft upplifuð sem einföld og mild í framkvæmd. Hreyfingarnar eru fáar, snertingin létt og meðferðin virðist á yfirborðinu ekki flókin. Þrátt fyrir…
Hvað gerir bandvefslosun með Bowen nálgun áhrifaríka?
Bandvefslosun með Bowen nálgun er oft upplifuð sem einföld og mild í framkvæmd. Hreyfingarnar eru fáar, snertingin létt og vinnan virðist á yfirborðinu ekki flókin. Þetta vekur eðlilega spurningu: hvað er það sem getur gert þessa nálgun gagnlega í klínísku starfi?
Í Bowen-vinnu er ekki fyrst og fremst leitast við að vinna með eitt afmarkað svæði í einangrun. Líkaminn er skoðaður sem heild þar sem hreyfing, spenna, skynjun og viðbrögð tengjast.
Þegar bandvefslosun er unnin með Bowen nálgun er því ekki markmiðið að knýja fram breytingar með miklum krafti eða stöðugri íhlutun. Frekar er leitast við að gefa líkamanum markvisst áreiti og fylgjast síðan með því hvernig hann bregst við.
Í klínísku starfi kemur oft í ljós að svæði þar sem verkir eða stirðleiki koma fram þurfa ekki endilega að vera eini staðurinn sem vert er að skoða. Þess vegna hefst markviss vinna ekki endilega með því að vinna beint á því svæði sem einkennin koma fram, heldur með því að skoða einstaklinginn í heild og meta hreyfingu, spennu og tengsl milli svæða.
Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að greining og mat eru mikilvægir þættir í BBN.
Greiningarrammi Graham Pennington er eitt þeirra verkfæra sem við notum til að styðja þessa hugsun. Þar er lögð áhersla á líkamsstöðu, hreyfimynstur og breytingar sem hægt er að fylgjast með fyrir og eftir vinnu.
Meðferðin verður þá markvissari. Hreyfingar eru ekki valdar eingöngu vegna þess að þær eru næstar í ákveðinni röð, heldur út frá því sem meðferðaraðilinn sér og metur hverju sinni.
Einfaldleiki sem klínískt verkfæri
Einfaldleiki er einn af mikilvægustu þáttunum í þessari nálgun.
Markmiðið er ekki að framkvæma sem flestar hreyfingar eða vinna á sem flestum svæðum. Þegar matið gefur skýra vísbendingu um hvar skynsamlegt sé að byrja getur stundum verið nóg að nota örfáar og nákvæmar hreyfingar og gefa líkamanum síðan tíma til að bregðast við.
Þetta krefst þess að meðferðaraðilinn geti staðnæmst og metið hvort ástæða sé til að gera meira.
Stundum er næsta skref önnur hreyfing. Stundum er það endurmat. Og stundum er skynsamlegast að gera ekkert meira í bili.
Tímasetning og rými
Tímasetning skiptir einnig máli í þessari nálgun.
Eftir markvissa hreyfingu er ekki alltaf farið strax í næstu. Meðferðaraðilinn getur gefið einstaklingnum tíma til að bregðast við og fylgst með því sem gerist.
Þetta þýðir ekki að hlé séu föst regla eða að ákveðinn tími þurfi alltaf að líða á milli hreyfinga. Í BBN er áherslan fremur á að meðferðaraðilinn meti aðstæður hverju sinni.
Þegar svörun líkamans fær að hafa áhrif á næstu ákvörðun verður meðferðin að lifandi ferli í stað þess að vera fyrirfram ákveðin röð.
Mat og endurmat
Eitt af því sem aðgreinir klíníska nálgun frá því að fylgja einfaldri uppskrift er endurmatið.
Við skoðum einstaklinginn áður en við byrjum. Við veljum markvisst inngrip. Síðan skoðum við aftur.
Hvað breyttist?
Breyttist það sem við vorum að fylgjast með?
Breyttist eitthvað annað?
Eða sjáum við enga skýra breytingu?
Allt eru þetta upplýsingar sem geta haft áhrif á næstu ákvörðun.
Þannig verður meðferðaraðilinn ekki háður því að fyrsta hugmyndin hafi verið rétt. Hann getur breytt um stefnu ef það sem hann sér eftir vinnuna gefur tilefni til þess.
Kerfi sem stuðningur – ekki uppskrift
Kerfi og verkferlar geta verið gagnleg, sérstaklega í kennslu og þegar verið er að byggja upp grunnþekkingu og öryggi í starfi.
Þau verða hins vegar takmarkandi ef þau taka yfir klíníska hugsunina.
Í bandvefslosun með Bowen nálgun er markmiðið að nemandinn læri ekki aðeins hreyfingarnar heldur einnig að skilja hvenær og hvers vegna skynsamlegt getur verið að nota þær.
Þannig verður tæknin verkfæri sem meðferðaraðilinn velur út frá mati, fremur en röð sem þarf alltaf að fylgja.
Hvað getur þá gert nálgunina áhrifaríka?
Það er ekki ein ákveðin hreyfing eða eitt ákveðið ferli sem stendur eitt og sér.
Styrkur nálgunarinnar liggur frekar í samspili nokkurra þátta:
Greina áður en unnið er.
Velja einfalt og markvisst inngrip.
Gefа líkamanum svigrúm til að bregðast við.
Endurmeta það sem breyttist.
Laga næstu ákvörðun að því sem raunverulega kemur fram.
Þessi hugsun er kjarninn í BBN.
Markmiðið er ekki að gera meira heldur að gera það sem á við hverju sinni. Meðferðin verður þá einfaldari, markvissari og betur aðlöguð að einstaklingnum sem er fyrir framan okkur.
Í því liggur einn helsti styrkur bandvefslosunar með Bowen nálgun: að nota fá og einföld verkfæri, en beita þeim með athygli, klínískri dómgreind og virðingu fyrir svörun líkamans.
Lesa einnig
Tengdar greinar
Frekari lesning í sama faglega ramma.
Bandvefslosun með Bowen nálgun
Hvað er bandvefslosun með Bowen-nálgun?
Námskeið
Tengd námskeið
Viltu fara dýpra? Námskeið í bandvefslosun með Bowen nálgun — verkleg æfing og skýr fagleg staðla.
Viltu dýpka þekkinguna?
Skoðaðu námskeið í bandvefslosun með Bowen nálgun og tengdum fræðum.
