top of page

Um  okkur

Bowennam.is stendur að baki námskeiðum í bandvefslosun með Bowen nálgun fyrir meðferðaraðila sem vilja dýpka skilning sinn á líkamanum og þróa markvissari nálgun í meðferð.

Við leggjum áherslu á að miðla þessari nálgun á einfaldan, skýran og áhrifaríkan hátt, þannig að hún nýtist vel í daglegu starfi meðferðaraðila. Markmið okkar er að stuðla að vönduðum vinnubrögðum í meðferð og styðja við þróun og útbreiðslu þessarar nálgunar, sérstaklega meðal starfandi meðferðaraðila.

Í kennslunni er lögð áhersla á skilning á líkamanum, líkamslestur og klíníska hugsun, svo nemendur geti beitt aðferðinni á markvissan hátt í eigin starfi.

Við leggjum einnig áherslu á að nemendur gefi sér tíma til að æfa sig og þróa færni sína í þessari nálgun, þar sem reynsla og æfing eru lykill að góðum árangri í meðferð. Með æfingu þróast næmi fyrir líkamanum og hæfni til að vinna með það sem finnst í hverri meðferð.

Nálgunin

Nálgunin sem kennd er á bowennam.is byggir að stórum hluta á starfi og reynslu Graham Pennington, sem hefur starfað í áratugi sem meðferðaraðili og kennari. Pennington starfaði um tíma með Oswald Rentsch, sem síðar varð einn helsti kennari Bowen meðferðar eftir Tom Bowen. Síðar valdi Pennington þó að fara sína eigin leið og þróa áfram sína nálgun út frá klínískri reynslu.

Í starfi sínu hefur hann lagt áherslu á að snúa aftur að þeim einföldu meginhugmyndum sem einkenndu vinnu Tom Bowen sjálfs.

Í þessari nálgun er unnið með færri og markvissari hreyfingar, fremur en að fylgja fyrirfram ákveðnum meðferðarmynstrum eða „uppskriftum“. Meðferðaraðilinn lærir þess í stað að lesa líkama skjólstæðingsins og vinna með það sem hann finnur hverju sinni.

Áherslan er á að nota eins fáar hreyfingar og mögulegt er, en velja þær af nákvæmni og með skýrum tilgangi. Hugmyndin er sú að líkaminn þurfi oft aðeins lítið og vel staðsett áreiti til að hefja breytingar.

Þessi nálgun leggur því meiri áherslu á skilning, líkamslestur og klíníska hugsun en að fylgja föstum meðferðarmynstrum.

Kennararnir okkar.

Kennarar námskeiðanna hafa starfað við meðferð og kennslu í áratugi og hafa kennt námskeið víða um heim. Þeir meðal annars starfa sem sjúkraþjálfari   nálastungulæknir, naturopatog kennari í craniosacral meðferð, auk þess að hafa áratuga reynslu af Bowen meðferð.

Einn þeirra hafa einnig lagt sitt af mörkum til þróunar fagsins með ritun bóka, kennslu og fræðslu á alþjóðlegum vettvangi.

Í kennslunni er lögð áhersla á að miðla þekkingu á skýran og hagnýtan hátt og styðja nemendur í að þróa faglega og meðvitaða nálgun í meðferð.

myndmatt-east.jpg

Bowen kennari

myndjohnwilks.png

Bowen kennari

Um námskeiðin

Námskeiðin eru ætluð meðferðaraðilum sem vilja bæta við verkfærum í líkamsvinnu sinni og læra markvissa vinnu með bandvef og taugakerfi líkamans.

Bowennam logo – bandvefslosun með Bowen nálgun

354-899-8422

Brekkutangi 12

270 Mosfellsbær

Iceland

© 2025 by Bowen. Powered and secured by Wix 

bottom of page