Meðganga, ungbörn og börn
Hagnýtt námskeið með John Wilks um milda og nákvæma líkamsvinnu við meðgöngu, fæðingu, ungbörn og börn — fyrir sjúkraþjálfara, nuddara, CranioSacral-meðferðaraðila og aðra sem vinna með höndum.
3.–4. október 2026
59.000 kr.
Faglegt nám
Bowennám býður upp á verklega kennslu í BBN-nálguninni — með áherslu á líkamslestur, greiningu og sveigjanlega samþættingu við daglega meðferðarvinnu.
Æfing, endurgjöf og vinnubrögð sem nýtast beint í daglegri meðferð.
Námskeið sem dýpka klíníska hugsun, greiningu og verklega færni.
Gestakennsla og samstarf við reynslumikið fagfólk í líkamsvinnu og klínískri kennslu.
Skipulögð kennsla með skýrum ramma og áherslu á öryggi, nákvæmni og virðingu fyrir líkamanum.
Námskeið
Veldu það námskeið sem hentar þér best og skoðaðu dagsetningar, kennara og innihald.
Skoðaðu námskeiðin nánar — dagsetningar, innihald og skráning eru á síðu hvers námskeiðs.

Skynjun og líkamsvitund
Sérhæft námskeið
Námskeið fyrir þá sem vilja dýpka skynjun sína og skilning á líkamsvinnu. Unnið er með aðferðir úr Craniosacral, Bowen, orkuvinnu, Heart Center Therapy, sogæðameðferð og Reiki með áherslu á nærveru, snertingu, hreyfingu, flæði og svörun
17. október 2026 – 1. nóvember 2026
78.000 kr.