Staðnám
Grunnnámskeið
Námskeið fyrir þá sem vilja dýpka skynjun sína og skilning á líkamsvinnu. Unnið er með aðferðir úr Craniosacral, Bowen, orkuvinnu, Heart Center Therapy, sogæðameðferð og Reiki með áherslu á nærveru, snertingu, hreyfingu, flæði og svörun líkamans. Hentar bæði meðferðaraðilum og þeim sem vilja kynnast þessum nálgunum.
- Dagsetning
- 17. október 2026 – 1. nóvember 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
- Verð
- 78.000 kr.

Helstu upplýsingar
Helstu upplýsingar
- Dagsetning
- 17. október 2026 – 1. nóvember 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
- Verð
- 78.000 kr.
- Lengd
- 16 dagar
- Flokkur
- Staðnám
Um námskeiðið
Grunnnámskeið í skynjun og líkamsvinnu
Hvað ertu í raun að finna þegar þú snertir líkamann? Hvernig birtist hreyfing, flæði og svörun líkamans undir höndunum?
Þetta námskeið er ætlað þeim sem vilja þróa skynjun sína og læra að vinna með líkamann á dýpri og markvissari hátt. Áherslan er ekki á að læra fyrirfram ákveðna tækni heldur að skilja hvað er að gerast í líkamanum og hvernig hægt er að fylgja því sem birtist hverju sinni.
Á námskeiðinu er unnið með aðferðir úr Craniosacral, Bowen, orkuvinnu, Heart Center Therapy (Chikly nálgun), sogæðameðferð og Reiki. Þessar nálganir eiga það sameiginlegt að byggja á skynjun, nærveru og því að vinna með svörun líkamans frekar en að reyna að stjórna henni.
Meðal þess sem unnið er með á námskeiðinu er:
• Hreyfing í bandvef og öðrum líkamsvefjum • Craniosacral taktinn (CS takt) og hvernig hann birtist • Orkuflæði og breytingar í líkamanum • Tengsl snertingar, skynjunar og svörunar • Flæði og hreyfing í sogæðakerfinu
Í cranio hluta námskeiðsins er sérstaklega skoðað hvernig finna má og fylgja craniosacral taktnum, hvernig breytingar birtast í vefjum og hvernig líkaminn bregst við þegar takturinn hægist eða stöðvast.
Kennslan byggir á því að hver og einn þrói sína eigin skynjun. Ekki er verið að kenna eina rétta leið heldur skapa rými þar sem þátttakendur læra að treysta eigin upplifun og skilningi.
Námskeiðið hentar:
• Meðferðaraðilum sem vilja dýpka skynjun sína og færni • Þeim sem vinna með líkama og vilja bæta við nýrri nálgun • Einstaklingum sem vilja kynnast þessum aðferðum • Þeim sem vilja rifja upp og styrkja fyrri þekkingu
Hvort sem þú hefur mikla reynslu eða ert að stíga fyrstu skrefin í líkamsvinnu getur þetta námskeið veitt þér nýja sýn á snertingu, skynjun og samspil líkamans.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fari heim með dýpri skynjun, aukinn skilning á hreyfingu og flæði líkamans og meira traust á eigin innsæi og dómgreind í vinnu með fólk.
Þetta er ekki námskeið um að læra fleiri aðferðir.
Þetta er námskeið um að sjá og finna betur það sem þú ert nú þegar að vinna með.
Á námskeiðinu koma einnig gestakennarar og meðferðaraðilar með reynslu úr ólíkum meðferðarformum og kynna sínar nálganir. Þannig fá þátttakendur innsýn í fjölbreyttar leiðir og breiðari sýn á líkamsvinnu og meðferð.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Fyrir meðferðaraðila og einstaklinga sem vilja dýpka skynjun sína — hvort sem þú hefur reynslu eða ert að stíga fyrstu skrefin.
Hvað lærir þú?
Skynjun, líkamslestur og svörun líkamans — verkfæri sem styrkja nærveru og traust í meðferð.
- Skynjun og nærvera
- Líkamslestur
- Flæði og hreyfing
- Traust í meðferð
Hvernig fer kennslan fram?
Einfaldleiki, nærvera og traust á eigin skynjun — að hlusta, fylgja og bregðast við raunverulegri svörun.
- Einfaldleiki og nærvera
- Hlusta, fylgja, bregðast við
- Traust á eigin skynjun
- Sjálfstæði og dómgreind
Upplýsingar
Hagnýtar upplýsingar
Yfirlit yfir helstu atriði áður en þú mætir. Nákvæmar upplýsingar eru sendar við skráningu.
- Námskeiðslengd
- 17. október 2026 – 1. nóvember 2026
- Staðsetning
- Reykjavík
- Kennslufyrirkomulag
- Verkleg kennsla með sýnikennslu, æfingum og endurgjöf frá kennurum.
- Tungumál
- Íslenska
- Hvað þarf að taka með
- Þægileg föt til æfinga
- Minnisbók ef óskað er
- Handklæði eða teppi fyrir verklega vinnu
Algengar spurningar
Nei. Námskeiðið hentar bæði þeim með reynslu og þeim sem eru að stíga fyrstu skrefin — áherslan er á skynjun og næmni.
Að þróa skynjun, líkamslestur og skilning á svörun líkamans — ekki að safna fleiri tækni.
Já. Kennsla sameinar fræðslu og verklega vinnu þar sem hver og einn þróar sína eigin skynjun undir leiðsögn.
Birgir Hilmarsson og Anna Bjarnadóttir — auk gestakennara sem styðja við nálgunina þegar það á við.
Notaðu skráningarhnappinn á síðunni. Við staðfestum sæti og höfum samband með næstu skrefum. Engin greiðsla fer í gegnum vefinn.
Fleiri spurningar? Hafa samband
